Skrifstofan er opin alla virka daga frá 8:00 - 16:00

Um Skrifstofu rannsóknastofnana atvinnuveganna

Skrifstofa rannsóknarstofnana atvinnuveganna er sérstök ríkisstofnun sem heyrir undir landbúnaðar og sjávarútvegsráðuneytið og starfar undir lögum um rannsóknir í þágu atvinnuveganna frá 1965 og reglugerð frá 11. desember 1972. Forstöðumaður stofnunarinnar er Hjörtur Björnsson.

 

Hlutverk stofnunarinnar er að annast fjárvörslu og bókhald fyrir rannsóknarstofnanir atvinnuveganna.

 

Öll fjármál rannsóknastofnana atvinnuveganna fara í gegnum skrifstofuna. Hún sér um greiðslu reikninga, útborganir styrkja, innheimtu allra sértekna, allt bókhald og gerð ársreikninga, launaafgreiðslur, tollskýrslugerð, gjaldeyrismál og margt fleira.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skrifstofa rannsóknastofnana atvinnuveganna | Nóatúni 17 | 105 Reykjavík | Sími 515 8400 | Faxnúmer 515 8415