![]()
Skrifstofan er opin alla virka daga frá 8:00 - 16:00
Skrifstofa rannsóknarstofnana atvinnuveganna er sérstök ríkisstofnun sem heyrir undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið og starfar undir lögum um rannsóknir í þágu atvinnuveganna frá 1965 og reglugerð frá 11. desember 1972. Forstöðumaður stofnunarinnar er Hjörtur Björnsson.
Hlutverk stofnunarinnar er að annast fjárvörslu og bókhald fyrir rannsóknarstofnanir atvinnuveganna.
Öll fjármál rannsóknastofnana atvinnuveganna fara í gegnum skrifstofuna. Hún sér um greiðslu reikninga, útborganir styrkja, innheimtu allra sértekna, allt bókhald og gerð ársreikninga, launaafgreiðslur, tollskýrslugerð, gjaldeyrismál og margt fleira.